|
Alkorcell-fólía
Byltingarkennd nýjung á Íslandi

Hit-innréttingar bjóða nú nýjan valmöguleika, Alkorcell-fólíu, til að húða innréttingar. Tölvutstýrt tæki gerir jafnframt mynstur í plötur, rúnnar brúnir, tekur út fyrir lömum og borar fyrir höldum. Hit er eina fyrirtækið á Íslandi sem býður þessa hátækniþjónustu og er hægt að nota fólíuna á margvíslegar gerðir efna með mismunandi yfirborð.
Ný lausn
Í heimi húsgagna- og innréttingahönnunar er sífellt verið að leita hagnýtra leiða, sem eru endingargóðar og standast kröfur tískunnar. Alkorcell polyolefin-fólían er nýjung sem tekur við af eldri aðferðum við að lakka innréttingar, hurðir og húsgögn. Yfir 1.500 mismunandi gerðir eru til af Alkorcell-fólíunni, þar á meðal margvísleg viðaráferð ótrúlega lík fyrirmyndinni.
Þægilegt er að vinna með Alkorcell-fólíuna, hún hefur mikið slitþol og reynist sérlega vel í raka. Þetta gerir hana hentuga á alls kyns fleti, allt frá baðherbergisinnréttingum til hátalaraboxa, en hún er einmitt í hávegum höfð hjá framleiðendum þeirra.
Alkotherm stenst allar væntingar
Alkotherm tæknifólían er nýjasta afurð rannsóknardeildar Alkor. Þessi fólía hefur sérstaka aðlögunarhæfni og fellur jafnt að hefðbundnum sem framúrstefnulegum hugmyndum. Alkotherm-fólían hefur slegið í gegn hjá hönnuðum og framleiðendum innréttinga um allan heim.
Alkotherm-fólían hefur mikinn teygjanleika og slitþol sem gerir það að verkum að brúnir og samskeyti falla saman án ummerkja.
Alkotherm-fólíuna má einnig nota utanhúss. Hún upplitast ekki við sólarljós, þannig að auðvelt er að bæta við seinna á þess að litamunur sjáist.
Allar Alkor-fólíur standast alþjóðlegar brunareglur, þær eru endurvinnanlegar og umhverfisvænar.
Málmlitir
Alkor er einnig með afgerandi forystu þegar kemur að málmfólíum. Þessar fallegu hitaþolnu fólíur standast allar ströngustu kröfur um brunaþol og eru til í ýmsum litum. Því hafa þær verið notaðar á jafn ólíka hluti og bílskúrshurðir og myndbandstæki. Þær henta á innréttingar og loftaklæðningar og eru vinsæl áferð í bátum og bílum.
Vinnsla
Alkor-fólíurnar eru límdar og pressaðar á efnið við 130 °C hita og undir þriggja tonna þrýstingi.
|