Hit innréttingar var stofnað í oktober 1997 af Herði Inga Torfasyni húsasmíðameistara. Hit innréttingar hefur tekið að sér alla almenna innréttingasmíði hvort heldur er í íbúðashúsnæði verslunar eða skrifstofuhúsnæði.
Vorið 2001 keypti fyrirtækið nýjan og fullkominn tölvufræsara , sem bæði sagar borar og fræsir með nákvæmni uppá 1/10 úr millimetra. Þannig er hægt að fræsa munstur og stafi í hurðir innréttinga með litlum tilkostnaði.
Meðal verka sem fyrirtækið hefur annast er smíði á öllum innréttingum í verslunina Hygea í Smáralind. Smíði á standií verslunina No name í Smáralind og smíði á öllum innréttingum fyrir Byggingafélag námsmanna, ásamt fjölda annarra verka.
Í lok árs 2002 keypti fyrirtækið tölvustýrða formpressu til húðunar á mdf plötum og örðu efni sem til fellur.
Fyrirtækið hefur tekið þátt í sýningum og þar á meðal byggingardögum í Hafnarfirði haustið 2003 og sýndi þar fólíuinnréttingar sem er algjör nýjung hér á landi og er Hit innréttingar eina fyrirtækið með þessa tækni hér á landi.
Innréttingar frá Hit innréttingum hafa komið nokkrum sinnum í Innlit útlit á skjá einum einnig hafa innréttingar okkar komið við hjá blaðinu Húsi og hýbýlum.